🇮🇸 Mánudaginn 23. maí 2021 lýkur í Þjóðarbókhlöðu sýningu á bókverkum úr norræna bókverkasafninu Bibliotek Nordica, sem er eitt af verkefnum Codex Polaris, og samanstendur af bókverkum meira en 80 valdra listamanna, hönnuða, rithöfunda og prentlistamanna (sjá sýningarskrá hér). Bibliotek Nordica var framleitt í 10 eintökum og hefur verið sýnt víða um lönd.
Næsti sýningarstaður Bibliotek Nordica er bókamessan CHART Art Fair í Kunsthal Charlottenborg við Kóngsins nýja torg í Kaupmannahöfn, dagana 26. – 29. ágúst 2021. Bibliotek Nordica verður þar hluti af sýningu Codex Polaris-hópsins.
Sex ARKIR eiga verk í Bibliotek Nordica: Anna Snædís Sigmarsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir og Svanborg Matthíasdóttir. Myndirnar eru frá sýningunni í Landsbókasafni Íslands, Þjóðarbókhlöðu.
🇬🇧 The exhibition of works from Bibliotek Nordica in the National Library of Iceland will close on Monday, 22 August. The book art project run by Codex Polaris, representing more than 80 selected artists, designers, writers, and printmakers from the Nordic Countries includes works by six members of ARKIR: Anna Snædís Sigmarsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir and Svanborg Matthíasdóttir. For more information see website: Bibliotek Nordica and catalog here.The exhibition is open on Mon from 9 am to 5 pm. For opening hours and covid-19 restrictions see here and here.
Veggspjald – hönnun | poster design: Áslaug Jónsdóttir.
Ljósmyndir | photos: Áslaug Jónsdóttir.
Smellið á myndirnar til að stækka. | Click on the images to enlarge.