Bókverkasýningin JAÐARLÖND | BORDERLANDS í Landsbókasafni Íslands er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2020 og verður opin gestum frá föstudeginum 21. ágúst 2020 til sunnudagsins 20. september. Sýninguna er að finna í sýningarrými Þjóðarbókhlöðunnar við Arngrímsgötu 3. Nánar verður tilkynnt um viðburði tengda sýningunni síðar.
JAÐARLÖND er samsýning sextán listamanna frá sjö löndum: þar sýna tíu ARKIR og sex erlendir listamenn. Titill sýningarinnar, JAÐARLÖND, vísar til heima á jaðri veraldar, jaðri sem er, þegar að er gáð, síbreytilegur í veraldarsögunni. Í fjölbreyttum bókverkum skoða listamennirnir lönd og mæri, texta og tungumál, náttúru og menningarheima frá ólíkum sjónarhornum.
Sýningin er annars vegar samsett úr nýlegum verkum sem aðeins hafa verið sýnd í Bandaríkjunum á farandsýningunni BORDERLAND og hins vegar úr nýjum og eldri bókverkum ARKA, og gesta þeirra frá Danmörku, Noregi, Litháen, Póllandi, Bretlandi og Bandaríkjunum.
Gestir beðnir um að gæta vel að sóttvörnum og almennum nálægðartakmörkunum vegna Covid-19 heimsfaraldursins.
🇬🇧 Our exhibition JAÐARLÖND | BORDERLANDS – a part of Reykjavík Arts Festival 2020, –will be open from Friday 21st of August at the National and University Library of Iceland – Þjóðarbókhlaðan, Arngrímsgata 3, in Reykjavík. The exhibition will stand until September 20, 2020. We will post more information about possible events later.
The title of the exhibition, JAÐARLÖND | BORDERLANDS, refers to the peripheries of the world, the borders and boundaries that are, after all, subject to change and movable and highly fickle in the history of the world. In the works, the artists explore various perspectives on land and in nature, boundaries and borders, text and languages, communication and cultures.
The exhibition is partly made up of recent works of ARKIR that have only been shown in the United States on the touring exhibition BORDERLAND, and partly from new and older works by ARKIR and their guests from Denmark, Norway, Lithuania, Poland, UK and USA.
We kindly ask all our guests to keep in mind safety precautions and social distancing due to the Covid-19 pandemic.
Veggspjald: | Poster by Kristín Þóra Guðbjartsdóttir
ÞÁTTTAKENDUR | PARTICIPANTS:
Åse Eg Jørgensen (Denmark), Imi Maufe (Norway), Kestutis Vasiliunas (Lithuania), Nancy Campbell (UK), Rebecca Goodale (USA), Bożka Rydlewska (Poland) – og ARKIR: Anna Snædís Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Bryndís Bragadóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Jóhanna Margrét Tryggvadóttir, Sigurborg Stefánsdóttir, Svanborg Matthíasdóttir.