🇮🇸 Sýningunni JAÐARLÖND | BORDERLANDS í Þjóðarbókhlöðu lauk nú s.l. sunnudag, 20. september. Sýningin var á dagskráListahátíðar í Reykjavík 2020 og við ARKIR erum þakklátar starfsfólki Landsbóksafns Íslands og Listahátíðar fyrir að styðja okkur og hvetja, því í miðjum heimsfaraldri er ekki sjálfsagt að halda listviðburði af neinu tagi. Vegna smithættu varð lítið úr hefðbundinni opnun og minna um leiðsagnir og vinnustofur. Listamannaspjall héldum við þó síðdegis nokkrar helgar og aðsókn var dreifð og góð yfir allan sýningartímann. Við þökkum gestum okkar fyrir uppörvandi umsagnir og ætlum að næstu sýningar okkar bíði betri og bjartari tíma, lausum við farsóttir.
Allar upplýsingar um sýninguna og fleiri myndir er að finna hér á síðunni: JAÐARLÖND | BORDERLANDS.
🇬🇧 The exhibition JAÐARLÖND | BORDERLANDS in the National Library of Iceland ended last Sunday, September 20th. The exhibition was part of Reykjavík Arts Festival 2020 and ARKIR are grateful to the staff at the National Library and the Art Festival for supporting and encouraging us: holding an art event of any kind is not obvious or easy to do in the middle of a pandemic. Only few people could be invited to the opening and later festive gathering, and guided tours and artist talks were performed with care. Yet, all in all the attendance was very good throughout the exhibition time. We thank our guests for the compliments and kind reviews and hope that our next exhibition will be held at a better and brighter time, free from epidemics.
All further information about the exhibition and more photos can be found here on this page: JAÐARLÖND | BORDERLANDS.
Ljósmyndir | photos: Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Ólafur Engilbertsson.
Smellið á myndirnar til að stækka. | Click on the images to enlarge.
🇮🇸 Sýningin okkar JAÐARLÖND | BORDERLANDS á Listahátíð í Reykjavík opnaði án boðsgesta í Þjóðarbókhlöðu föstudaginn 21. ágúst 2020, en vegna heimsfaraldursins og tiheyrandi sóttvarna var ekki boðað til almennrar sýningaropnunar eins og venja er. Við ARKIR glöddumst þó yfir góðum áfanga ásamt fulltrúum frá Landsbókasafni og Listahátíð í Reykjavík. Hér neðar eru nokkrar myndir frá fyrsta sýningardeginum.
↑ Sex af sextán listamönnum sem eiga verk á sýningunni, frá vinstri: Sigurborg Stefánsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir sýningarstjóri, Svanborg Matthíasdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir og Helga Pálína Brynjólfsdóttir.
Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2020 og stendur til sunnudagsins 20. september. Sýninguna er að finna í sýningarrými Þjóðarbókhlöðunnar við Arngrímsgötu 3. Hún er opin á mán-fim frá 8.15-22, frá 8.15 -19 á föstudögum, 10-17 á laugardögum og 11-17 á sunnudögum. Gestir beðnir um að gæta vel að sóttvörnum og almennum nálægðartakmörkunum vegna Covid-19 heimsfaraldursins.
Þess má geta að allar helgar taka listakonur úr ARKA-hópnum á móti gestum sýningarinnar á milli kl 15.00 og 17.00.
JAÐARLÖND er samsýning sextán listamanna frá sjö löndum. Sýningin er annars vegar samsett úr nýlegum verkum sem aðeins hafa verið sýnd í Bandaríkjunum á farandsýningunni BORDERLAND og hins vegar úr nýjum og eldri bókverkum ARKA, og gesta þeirra frá Danmörku, Noregi, Litháen, Póllandi, Bretlandi og Bandaríkjunum. Sýningarstjóri er Kristín Þóra Guðbjartsdóttir.
Um alla þátttakendur og verk þeirra á sýningunni má lesa á sérstakri síðu hér:JAÐARLÖND | BORDERLANDS.
Í tilefni af opnun sýningarinnar ræddi Sigurlaug M. Jónasdóttir við ARKIRNAR Helgu Pálínu Brynjólfsdóttur og Svanborgu Matthíasdóttur í þættinum Segðu mérá RÚV, 26. ágúst.
Viðtal við sýningarstjórann, Kristínu Þóru Guðbjartsdóttur, birtist svo í Fréttablaðinu 1. september. Smellið hér til að lesa.
🇬🇧 The exhibition JAÐARLÖND | BORDERLANDS had a quiet and controlled opening on Friday August 21st – without the usual invitations due to covid19-restrictions. But six of the exhibiting artists, few guests and representatives from the Reykjavík Art Festival and the National Library had a happy afternoon at the National Library.
Our exhibition JAÐARLÖND | BORDERLANDS– a part of Reykjavík Arts Festival 2020, is held at the National and University Library of Iceland – Þjóðarbókhlaðan, Arngrímsgata 3, in Reykjavík. The exhibition will stand until September 20, 2020 and is open Mondays to Thursdays from 8:15 am to 10 pm; on Fridays from 8:15 am to 7 pm; on Saturdays from 10 am to 5 pm and Sundays from 11 am to 5 pm. We kindly ask all our guests to keep in mind safety precautions and social distancing due to the Covid-19 pandemic.
The exhibition is partly made up of recent works of ARKIR that have only been shown in the United States on the touring exhibition BORDERLAND, and partly from new and older works by ARKIR and their guests from Denmark, Norway, Lithuania, Poland, UK and USA. Exhibition curator is Kristín Þóra Guðbjartsdóttir. Read about all the participants and their works on a special page here: JAÐARLÖND | BORDERLANDS.
Ljósmyndir | photos: Áslaug Jónsdóttir, Ólafur Engilbertsson, Svanborg Matthíasdóttir.
Bókverkasýningin JAÐARLÖND | BORDERLANDS í Landsbókasafni Íslands er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2020 og verður opin gestum frá föstudeginum 21. ágúst 2020 til sunnudagsins 20. september. Sýninguna er að finna í sýningarrými Þjóðarbókhlöðunnar við Arngrímsgötu 3. Nánar verður tilkynnt um viðburði tengda sýningunni síðar.
JAÐARLÖND er samsýning sextán listamanna frá sjö löndum: þar sýna tíu ARKIR og sex erlendir listamenn. Titill sýningarinnar, JAÐARLÖND, vísar til heima á jaðri veraldar, jaðri sem er, þegar að er gáð, síbreytilegur í veraldarsögunni. Í fjölbreyttum bókverkum skoða listamennirnir lönd og mæri, texta og tungumál, náttúru og menningarheima frá ólíkum sjónarhornum.
Sýningin er annars vegar samsett úr nýlegum verkum sem aðeins hafa verið sýnd í Bandaríkjunum á farandsýningunni BORDERLAND og hins vegar úr nýjum og eldri bókverkum ARKA, og gesta þeirra frá Danmörku, Noregi, Litháen, Póllandi, Bretlandi og Bandaríkjunum.
Gestir beðnir um að gæta vel að sóttvörnum og almennum nálægðartakmörkunum vegna Covid-19 heimsfaraldursins.
🇬🇧 Our exhibition JAÐARLÖND | BORDERLANDS– a part of Reykjavík Arts Festival 2020, –will be open from Friday 21st of August at the National and University Library of Iceland – Þjóðarbókhlaðan, Arngrímsgata 3, in Reykjavík. The exhibition will stand until September 20, 2020. We will post more information about possible events later.
The title of the exhibition, JAÐARLÖND | BORDERLANDS, refers to the peripheries of the world, the borders and boundaries that are, after all, subject to change and movable and highly fickle in the history of the world. In the works, the artists explore various perspectives on land and in nature, boundaries and borders, text and languages, communication and cultures.
The exhibition is partly made up of recent works of ARKIR that have only been shown in the United States on the touring exhibition BORDERLAND, and partly from new and older works by ARKIR and their guests from Denmark, Norway, Lithuania, Poland, UK and USA.
We kindly ask all our guests to keep in mind safety precautions and social distancing due to the Covid-19 pandemic.
Veggspjald: | Poster by Kristín Þóra Guðbjartsdóttir
Vegna covid-19 heimsfaraldursins hefur sýningunni JAÐARLÖND | BORDERLANDS á Listahátíð í Reykjavík verið frestað fram á haust. Áformað er að sýningin opni föstudaginn 21. ágúst 2020 í Landsbókasafni Íslands, í sýningarrými Þjóðarbókhlöðunnar við Arngrímsgötu 3. Sýningin stendur fram til sunnudagsins 20. september. Nánar verður tilkynnt um sýninguna síðar.
JAÐARLÖND er sýning á bókverkum sautján listamanna frá sjö löndum: þar sýna ellefu ARKIR og sex erlendir listamenn. Titill sýningarinnar, JAÐARLÖND, vísar til heima á jaðri veraldar, jaðri sem er, þegar að er gáð, breytilegur og færanlegur í veraldarsögunni. Í fjölbreyttum bókverkum skoða listamennirnir lönd og mæri, texta og tungumál, náttúru og menningarheima frá ólíkum sjónarhornum.
Sýningin er annars vegar samsett úr nýlegum verkum sem aðeins hafa verið sýnd í Bandaríkjunum á farandsýningunni BORDERLAND og hins vegar úr nýjum og eldri bókverkum ARKA og gesta þeirra frá Danmörku, Noregi, Litháen, Póllandi, Bretlandi og Bandaríkjunum.
🇬🇧 Due to the covid-19 pandemic our exhibition JAÐARLÖND | BORDERLANDSat Reykjavík Arts Festival 2020, has been postponed until August – September. We plan to open the exhibition on Friday 21st of August at the National and University Library of Iceland – Þjóðarbókhlaðan – at Arngrímsgata 3 in Reykjavík. The exhibition will stand until September 20, 2020. We will post more information about the exhibition later.
The title of the exhibition, JAÐARLÖND | BORDERLANDS, refers to the peripheries of the world, the borders and boundaries that are, after all, subject to change and movable and highly fickle in the history of the world. In the works, the artists explore various perspectives on land and in nature, boundaries and borders, text and languages, communication and cultures.
The exhibition is partly made up of recent works of ARKIR that have only been shown in the United States on the touring exhibition BORDERLAND, and partly from new and older works by ARKIR and their guests from Denmark, Norway, Lithuania, Poland, UK and USA.
Myndin fyrir ofan er af bókverki Kristínar Þóru Guðbjartsdóttur
Image above: book art by Kristín Þóra Guðbjartsdóttir
Eldri frétt | Posted on
Við kynnum fleiri sýningar framundan! ARKIR undirbúa sýninguna JAÐARLÖNDí Veröld – húsi Vigdísar. Sýningin er á dagskrá Listahátíðarog í samvinnu við Vigdísarstofnun. JAÐARLÖND er sýning á bókverkum sautján listamanna frá sjö löndum: þar sýna ellefu ARKIR og sex erlendir listamenn.
Titill sýningarinnar, JAÐARLÖND, vísar til heima á jaðri veraldar, jaðri sem er, þegar að er gáð, breytilegur og færanlegur í veraldarsögunni. Í fjölbreyttum bókverkum skoða listamennirnir lönd og mæri, texta og tungumál, náttúru og menningarheima frá ólíkum sjónarhornum.
Sýningin er annars vegar samsett úr nýlegum verkum sem aðeins hafa verið sýnd í Bandaríkjunum á farandsýningunni BORDERLAND og hins vegar úr nýjum og eldri bókverkum ARKA og gesta þeirra frá Danmörku, Noregi, Litháen, Póllandi, Bretlandi og Bandaríkjunum. Sýningin opnar laugardaginn 6. júní og stendur til 4. júlí.
🇬🇧 ARKIR prepare an artist’s book exhibition in Reykjavík in June. The exhibition JAÐARLÖND | BORDERLANDS will be held in Veröld – House of Vigdís at Reykjavík Arts Festival 2020, opening on Saturday 6 June, closing 4 July. Full program for Reykjavík Arts Festival will be revealed in April.
The title of the exhibition, JAÐARLÖND | BORDERLANDS, refers to the peripheries of the world, the borders and boundaries that are, after all, subject to change and movable and highly fickle in the history of the world. In the works, the artists explore various perspectives on land and in nature, boundaries and borders, text and languages, communication and cultures.
The exhibition is partly made up of recent works of ARKIR that have only been shown in the United States on the touring exhibition BORDERLAND, and partly from new and older works by ARKIR and their guests from Denmark, Norway, Lithuania, Poland, UK and USA. The exhibition is in collaboration with Vigdís International Center.
Í byrjun febrúar hittust ARKIR á daglöngu námskeiði hjá listakonunni og bókahönnuðinum Åse Eg Jørgensen, en þessar vikurnar stýrir hún þematengdri gestavinnustofu, „Printing Matter“, í listamiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði. Þetta er í annað sinn sem Skaftfell skipuleggur vinnustofu með Åse, en þar er rýnt í prentaðferðir og bókverkagerð og gerðar tilraunir með þá miðla. Åse er ein af aðstandendum listaritsins Pist Protta og útgáfunnar Space Poetry sem hefur aðsetur í Kaupmannahöfn.
Við ARKIR njótum góðs af ferðum Åse til Íslands og þetta er í annað sinn sem við setjum upp litla vinnustofu í tengslum við heimsóknir hennar til landsins. Að þessu sinni gerðum við m.a. tilraunir með liti og prent úr heimafengnu grænmeti, skoðuðum endurtekningu og mynstur, samhengi og þræði, náttúruliti og tóna. Myndir frá fyrri vinnustofu sem fór fram tvo daga í janúar 2017 má sjá neðar á síðunni, en þá rýndum við í letur og leturform.
Early in February ARKIR met in a one-day-workshop with Danish book artist and designer Åse Eg Jørgensen, who is currently leading an artist residency program at Skaftfell Center for VIsual Art in Seyðisfjörður. This year’s thematic residency program in Skaftfell is “Printing Matter”, a three-week intensive program focusing on printmaking and artist book making. This is the second time Skaftfell arranges an artists book program with Åse Eg, who is one of the founders and possessor of the Danish experimental art magazine Pist Protta and Space Poetry Publishing.
ARKIR have been able to arrange short workshops with Åse in connection with her trips to Iceland, this year and in 2017. This time we did experiments with colors and prints from local vegetables, studied the notion of thread and repetition, patterns and natural colors. In January 2017 we had a two-days workshop studying letters and letterforms, see photos further below.
2018 – ARKIR workshop
Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.
2017 – ARKIR workshop
ARKIR á bókverkanámskeið með Åse Eg Jørgensen í janúar 2017. Happy ARKIR in a book art workshop with Danish artist Åse Eg Jørgensen in 2017.
Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.