Ljósmyndir: | Photos: Kristín Þóra Guðbjartsdóttir,
Áslaug Jónsdóttir og Sigurborg Stefánsdóttir.
🇮🇸 Bókverkamessan: Reykjavík Art Book Fair fór fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, dagana 30. mars til 2. apríl, 2023. ARKIR voru meðal þátttakenda á RABF en messan er nú haldin í annað sinn og heppnaðist sérlega vel. Þátttakendur og gestir komu víða að, bæði erlendir og innlendir.
Á listbókamessum ægir gjarnan saman sjálfstætt starfandi listamönnum og listamannareknum rýmum, galleríum, söfnum og óhefðbundnum bókaforlögum, aðgerðarsinnum, ljóðskáldum, listnemum, bóhemum og menningarvitum sem kynna eða kynna sér bókverk, ritlinga (zine), hönnunargripi, listtímarit, fjölfeldi, hlutfeldi, sýningaskrár, catalogue raisonné, ljóðabækur og fleira áhugavert.
Sigurður Atli Sigurðsson frá Prenti og vinum, Edda Kristín Sigurjónsdóttir, Helga Dögg Ólafsdóttir og Ólöf Rut Stefánsdóttir áttu heiður að skipulagi og framkvæmd RABF 2023. Húrra fyrir þeim!
Við þökkum öllum gestum sem komu á básinn til ARKA kærlega fyrir komuna!
🇬🇧 Reykjavík Art Book Fair was held at the Reykjavík Art Museum, Hafnarhús, from Thursday March 30 to Sunday April 2, 2023. ARKIR were among the exhibitors at RABF, a growing artist’s book fair. The weekend was a great success and we thank all the visitors who came to our booth for coming! Participants and guests were both local and from abroad. There were so many inspiring works and interesting books!
The board of the Reykjavík Art Book Fair: Helga Dögg Ólafsdóttir (graphic designer), Ólöf Rut Stefánsdóttir (product designer) and Sigurður Atli Sigurðsson (visual artist).




