ARKIR Í LEIFSHÚSUM |  NEW BOOK ART SEASON FOR ARKIR 

🇮🇸 ARKIRNAR eru að hefja vetrarstarfið og hafa nú þegar skipulagt tvær sýningar á næsta ári. Meira um það síðar. En það er vert að rifja upp vinnustofu ARKA í lok maí fyrr á árinu og dýrðlega dvöl í Leifshúsum á Svalbarðsströnd. Þar ræður ríkjum Stefán Tryggvason og við nutum gestrisni hans og velvilja í hvívetna. Hér á Fbsíðu Leifhúsa má kynna sér starfsemina og t.d. lesa viðtal hér og eða hlýða á viðtal hér við Stefán um uppbygginguna á staðnum.

ARKIR fóru endurnærðar og upplyftar inn í sumarið eftir dvölina. Við skipulögðum örnámskeið þar sem hver og ein lagði fram verkefni fyrir hópinn. Það voru margvísleg verkefni þar sem litir, texti, tækni, pappírsbrot og fleira lögðu grunn að kveikjum fyrir bókverk. Að kvöld var svo hægt að setjast að góðum mat eftir gönguferð eða stund í gufubaði og heitri laug.

Auðvitað nýttum við okkur líka menninguna í Eyjafirði. Við heimsóttum Listasafnið á Akureyri, Mjólkurbúðina í Listagilinu og Ævintýragarðinn magnaða. Við litum inn hjá Margréti Jónsdóttur leirlistakonu og Guðmundi Ármann listmálara. Við fengum frábæra leiðsögn á Safnasafninu hjá Níelsi Hafstein og Magnhildi Sigurðardóttur.

Myndirnar tala sýnu máli en við vorum himinlifandi yfir góðum móttökum og fullar aðdáunar á frumkvöðlunum þar nyrðra sem hafa skapað einstaka aðstöðu fyrir listir og menningu. Við komum aftur!

🇬🇧 ARKIR are kicking off new winter season and have already planned two exhibitions for the coming year—more on that later. However, it is worth looking back at the workshop ARKIR held in late May and the delightful stay at Leifshús on Svalbarðsströnd. The place is run by Stefán Tryggvason and we enjoyed his hospitality and goodwill in every respect. (You can learn more about the operation on Leifshús Facebook page;  lesa read about and or listen to an interview  with Stefán regarding the development of the site – all in Icelandic)

ARKIR entered the summer feeling refreshed and inspired after the weeklong workshop. We organized a series of mini-workshops where each member presented a project to the group. The projects were diverse, incorporating colour, text, techniques, paper folding, and more to spark ideas for artist’s books. In the evenings, we could sit down to a delicious meal after a walk or a relaxing time in the sauna and hot tub.

Naturally, we also took advantage of the cultural offers in the Eyjafjörður area. We visited Akureyri Art Museum, Gallery Mjólkurbúðin in the Art Street (Listagilið), and the amazing sculpture park Ævintýragarðurinn. We dropped in on ceramic artist Margrét Jónsdóttir and painter Guðmundur Ármann. We also received a fantastic guided tour of Safnasafnið (The Icelandic Folk and Outsider Art Museum) from Níels Hafsteinn and Magnhildur Sigurðardóttir. The photos speak for themselves – we were all overjoyed by the warm reception and full of admiration for the entrepreneurs up north who have created a unique setting for arts and culture. We will be back!

 

VINNUSTOFA ARKA | ARKIR WORKSHOP AT LEIFSHÚS  

ljósmyndir | photos: Áslaug Jónsdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Svanborg Matthíasdóttir, Kristín Guðbrandsdóttir.

Vorferð | Culture and recreation!

Gleðiferð: Eins og önnur traust og rótgróin félög, þá heldur Bókverkafélagið ARKIR reglulega ýmsa fagnaði og fræðslufundi. Nú á dögunum lögðu 10 ARKIR leið sína upp í Borgarfjörð og nutu menningar og náttúru.

A day out: As all well-established societies ARKIR Book Arts Group holds regularly celebrations and educational events. Sometimes the two in one, as happened the other day when ten ARKIR members took a day trip around Borgarfjörður area.

Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.


Hespuhúsið: Fyrsti viðkomustaðurinn var Hespuhúsið í Andakíl og þar fræddi Guðrún Bjarnadóttir okkur um jurtalitun og gróðurnytjar. Á dagskrá ARKA er bókverkasýning tengd textílum og Hespuhúsið því áhugaverður áfangastaður.

The Yarn House: The first stop was at Hespuhúsið plant dye studio where botanist Guðrún Bjarnadóttir gave us an introduction on her work and studies of botanical dyeing. Since ARKIR are working on an exhibition of textile books this made Hespuhúsið a very inspiring place to visit.


Krauma: Heilsubót og hádegisverð sóttu ARKIR í Kraumu, veitingastað og náttúrulaugar við Deildartunguhver.

Krauma: For lunch and recreation ARKIR spent a good while at Krauma geothermal baths.


Páll á Húsafelli: ARKIR heimsóttu Pál á Húsafelli og safnahúsin hans: Steinhörpuna, gamalt pakkhús sem hýsir margfrægar steinhörpur Páls, fjósið með málverkum, þrykkmyndum og höggmyndum og svo súrheysturninn sem hýsir fjölmargar höggmyndir. Páll sagði frá verkunum á sinn einstaka hátt, lék á steinhörpur og flautur úr rabarbaranjólum og birki.

Artist Páll Guðmundsson: ARKIR took the road to Húsafell where sculptor Páll Guðmundsson lives and works. His preferred material are rocks (mostly rhyolite and ignimbrite) from a mountain gully at his childhood farm. He seeks inspiration in Icelandic nature, creates sculptures and xylophones, uses ice as a base for monotypes, and creates flutes and pipes from rhubarbs and birch.

Kristín Þóra átti líka erindi við listamanninn á Húsafelli: hún vann að sýningu hans „Glitrar á hjarn“ og færði honum gestbókina frá sýningunni í formi bókverks. Sjá hér fyrir neðan.

Kristín Þóra (see below) also had an errand to run: she had curated one of Páll Guðmundsson’s exhibitions and had made a book from the greetings of the exhibition guests – matching his art of „ice-prints“


Kampavín við kvíaból: Páll veitti okkur góðfúslega leyfi til þess að leggja undir okkur gömlu kvíarnar til að njóta veitinga sem undirbúningsnefnd ferðarinnar skar hvergi við nögl. Og auðvitað nutum við náttúrunnar ótakmarkað í ferðinni: með sýn til fjalla, jökla og vatnsfalla.

A toast for a good trip: In the afternoon vi i had feast of packed meals at the old pen at Húsafell. Of course we also enjoyed the nature of Borgarfjörður: the glaciers and mountains, the waterfalls and rivers.


Ljósmyndir | photos:
© Áslaug Jónsdóttir, © Svanborg Matthíasdóttir, © Ingiríður Óðinsdóttir,
@ Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, @ Jóhanna M. Tryggvadóttir, @ Helga Pálína Brynjólfsdóttir.