🇮🇸 Föstudaginn 27. ágúst 2021 opnaði Sigurborg Stefánsdóttir sýninguna „Borðlagðar bækur“ í Smiðsbúðinni, Geirsgötu 5a, Reykjavík. Á sýningunni eru 50 bókverk og 3 málverk. Sýningin stendur til 22. september. Í kynningu um sýninguna segir:
„Sigurborg Stefánsdóttir nam myndlist við Skolen for Brugskunst – Danmarks designskole í Kaupmannahöfn á árunum 1982-7 og hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum bæði hér heima og erlendis. Á sýningunni í Smiðsbúðinni sýnir Sigurborg bókverk, ásamt nokkrum málverkum. Bókverk Sigurborgar eru af ýmsum toga, smáverk sem hvert og eitt inniheldur stuttar frásagnir ólíkar í formi og efni, sögur sem við könnumst við, stutt myndljóð.“
Sigurborg starfaði um árabil sem kennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Listaháskóla Íslands, auk þess að starfa að myndlist og grafískri hönnun. Hún vinnur nú fyrst og fremst að eigin mynd- og bókverkum og er með vinnustofu á Grensásvegi 12A í Reykjavík.
Sjá meira um verk Sigurborgar hér á vef ARKA eða á heimasíðu Sigurborgar og instagram.
🇬🇧 BOOK ART EXHIBITION! On Friday 27 August 2021, Sigurborg Stefánsdóttir opened her exhibition „Borðlagðar bækur“ (Books on the Table) in the goldsmith studio Smiðsbúðin, downtown Reykjavík at Geirsgata 5a. The exhibition includes 50 artist’s books and 3 painting and will be open till 22 September.
From an introduction of the exhibition: “Sigurborg Stefánsdóttir studied art at Skolen for Brugskunst – Danish Design School in Copenhagen in the years 1982-7 and has held a number of solo exhibitions and participated in numerous group exhibitions both in Iceland and abroad. At the exhibition in Smiðsbúðin, Sigurborg exhibits books, along with few paintings. Sigurborg’s books are of various kinds, small-scale works, each of which contains short tales that differ in form and content, stories that we are familiar with, short visual poems.”
Sigurborg worked for many years as a teacher at the Icelandic School of Arts and Crafts and the Iceland Academy of the Arts, in addition to working with visual art and graphic design. She now works primarily on her own art works and has a studio on Grensásvegur 12A in Reykjavík.
For more see Sigurborgs page on this site, her personal website and instagram.