Níu ARKIR taka þátt í bókverkasýningu á Kýpur sem opnar í dag í fornfrægu safni í Nicosíu: Hadjigeorghagis Kornesios House. Titill sýningarinnar, DRIFTING CLOUDS, vísar í texta úr Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen en verkin tengjast eyjum við strendur Evrópu, allt frá norðri til suðurs. Verk á sýningunni eiga: Anna Snædís Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Bryndís Bragadóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir og Svanborg Matthíasdóttir. Með sýningarstjórn fer Ruth Keshishian, Moufflon Bookshop. Sýningin stendur frá 14. október til 18. nóvember og er einnig á dagskrá bókmenntahátíðar í Famagusta Gate Cultural Centre í Nisosíu frá 30. okt – 2. nóv.
– – –
ARKIR participate in a book art exhibition in Cyprus, opening today at Hadjigeorghagis Kornesios House in Nicosia. DRIFTING CLOUDS, the title of the exhibition, is inspired by Henrich Ibsen’s Peer Gynt where much of the play was written on the island of Ischia. The artists books and the theme relates to islands off the frayed coast of Europe, from north to the south. Curator is Ruth Keshishian, Moufflon Bookshop. The exhibition is open from 14th October to 18th November 2015 and is also a part of the 2nd International Literary Festival in Famagusta Gate Cultural Centre Oct. 30 to Nov. 2nd. with the theme: Crossing Borders, Connecting Cultures – dedicated to the Nordic countries.
Category Archives: Exhibition
Við minnum á sýningarlok ~ Last weeks of exhibition
Með þessum myndum minnum við á yfirstandandi sýningu Arkanna: ENDURBÓKUN í Spönginni Menningarhúsi, en henni lýkur laugardaginn 3. október 2015. Sýningin er opin á opnunartíma bókasafnsins: mánudaga til fimmtudaga frá kl 10-19, föstudaga kl 11-19 og laugardaga kl 12-16.
Sjá má fleiri myndir af bókverkum á fyrstu sýningu ENDURBÓKUNAR hér and hér.
ARKIR’s exhibition ENDURBÓKUN – RE-BOOK at Spöngin Culture House, has been well received since the opening on July 1st. WIth these photos we would like to make a note that the exhibition closes on October 3rd 2015.
Check out more photos from ENDURBÓKUN here and here.
Ljósmyndir / photos: Kristín Þóra Guðbjartsdóttir og Áslaug Jónsdóttir.
Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.
Frá opnun í Spönginni ~ Photos from exhibition opening in July
Hratt líður stund. Við áttum alveg eftir að gera opnun sýningarinnar ENDURBÓKUN í Spönginni Menningarhúsi skil hér á vef ARKANNA. Sýningin opnaði þar 1. júlí með ljúfri stemningu. Sýningarlok eru 3. október. Við þökkum góðar viðtökur í Grafarvoginum.
How time flies! We opened the third variant of our book art exhibition ENDURBÓKUN – RE-BOOK in the City Library, Spöngin Culture House, on July 1st, but we haven’t posted any photos from the opening yet. So now we do! Make sure you check out more photos from ENDURBÓKUN on this blog. The exhibition closes on October 3rd.
Ljósmyndir / photos: Kristín Þóra Guðbjartsdóttir og Áslaug Jónsdóttir.
Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.
ENDURBÓKUN í Spönginni – Re-booked in Grafarvogur
Við enduropnum endurnýjaða ENDURBÓKUN í Borgarbókasafni – Menningarhúsi Spönginni í dag, 1. júlí kl 17. Verið velkomin á opnunina! Flest verkin voru sýnd í Gerðubergi á síðasta ári og snemma vors á þessu ári í bókasafni Reykjanesbæjar, en ný og áður ósýnd verk er einnig að finna í Spönginni. Sem fyrr eru verkin unnin úr aflóga bókum, að megni til afskrifuðum bókum frá Borgarbókasafni. Sýningin stendur til 3. október.
Our exhibition ENDURBÓKUN / RE-BOOK has found its way back to Reykjavík from Reykjanes and will now open in Spöngin Culture House, one of Reykjavík City Library branches. This is our third version of this exhibition, with works created from old books, mostly discared books from Reykjavík City Library. To every exhibition we have added some new works. ENDURBÓKUN in Spöngin Culture House will be open until 3. October, see the library opening hours. Welcome to opening today, 1. July at 5 pm!
Opnun á ENDURBÓKUN – Opening in Reykjanesbær
Í gær, laugardaginn 18. apríl var opnun á sýningunni okkar, ENDURBÓKUN, í Bókasafni Reykjanesbæjar. Við þökkum áhugasömum gestum fyrir komuna og starfsfólki bókasafnsins fyrir framúrskarandi móttökur. Nánar má lesa um sýninguna hér: ARKIR: Endurbókun (pdf) eða á hér á vef bókasafnsins.
Yesterday, on April 18th, we opened our exhibition ENDURBÓKUN / RE-BOOKED in Reykjanesbær Public Library. We would like to thank to all the keen guests we met at the opening and of course many thanks to the helpful staff of the library for their hospitality and interest. The exhibition is open Monday – Friday 09:00 – 18:00, Saturday 11:00 – 17:00 and will be on display until May 30, 2015.
Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.
Endurbókun – Rebooked in Reykjanesbær
Endurbókaðar ARKIR! Við opnum sýningu í Bókasafni Reykjanesbæjar næstkomandi laugardag. Flest verkin voru sýnd á bókverkasýningunni ENDURBÓKUN í Gerðubergi á síðasta ári, en sem fyrr eru verkin unnin úr gömlum afskrifuðum bókum af Borgarbókasafni. Gamlar bækur öðlast þannig nýtt líf í einstæðum listaverkum. Við mælum auðvitað með margslunginni menningu og náttúru á Reykjanesi!
ARKIR have “re-booked” an exhibition. We’ll be opening a version of our exhibition ENDURBÓKUN (Re-book) in Reykjanesbær Public Library, on Saturday April 18th. All the works are created by using old books, mostly discared books from Gerðuberg Library / Reykjavík City Library. Old books but new art! Highly recommended: Go visit Reykjanes!
Sýningar á döfinni – ARKIR: book art exhibitions
Meðlimir ARKA hafa oft tekið þátt í samsýningum erlendis og hérlendis og næstar á döfinni eru tvær sýningar sem þær Anna Snædís Sigmarsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir og Svanborg Matthíasdóttir taka þátt í. Fleiri sýningar eru einnig framundan og verður sagt frá þeim síðar.
Norræn bókverk í Gallery Jangva í Helsinki
Listamaðurinn Olof Kangas er sýningarstjóri Norrænnar bókverkasýningar sem er í röð sýninga sem haldnar eru í tilefni 20 ára afmælis Gallerí Jangva í Helsinki. Sigurborg, Anna Snædís og Svanborg eiga verk á afmælissýningunni, en hún opnar 2. april og stendur til 26. april 2015. Nánari upplýsingar: Gallery Jangva, Uudenmaankatu 4-6, courtyard, 00120 Helsinki.
Mistök í Gallery Titanikas í Vilnius
Verk þeirra Önnu Snædísar, Sigurborgar og Svanborgar voru einnig valin á „Sjöunda alþjóðlega bókverkaþríæringinn í Vilnius 2015“, en þema þríæringsins er “Error” {Mistake}: villa eða mistök. Verkin verða til sýnis frá 22. október til 21. nóvember 2015, í Gallery Titanikas, Maironio st. 3, í Vilnius í Litháen, en galleríið tilheyrir Listaháskólanum í Vilnius. Hluti verkanna verður einnig til sýnis í Leipzig í Þýskalandi; í Vercelli á Ítalíu; í Austurríki; í Nacogdoches, Texas, og einnig í Ástralíu. Nánar má lesa um þríæringinn hér: ERROR.
ARKIR are busy as always! Three members from the group are taking part in exhibitions in Vilnius and Helsinki:
Nordic Artists’ Books in Helsinki
Jangva gallery invited artist Olof Kangas as a curator to organize Nordic Artists’ Books exhibition at Gallery Jangva Studio. This exhibition is part of Gallery Jangva’s 20th anniversary invitational exhibitions. Anna Snædís Sigmarsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir and Svanborg Matthíasdóttir were invited to take part as the Icelandic representatives.
The exhibition opens April 2. and continues on view through April 26. 2015 in Gallery Jangva, Uudenmaankatu 4-6, courtyard, 00120 Helsinki. For further information see link.
Error in Vilnius
Anna Snædís Sigmarsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir and Svanborg Matthíasdóttir were also selected for the “7th International Artist’s Book Triennial Vilnius 2015” with the theme “Error” {Mistake}.
The book art exhibition ERROR will be open from October 22. through November 21. 2015 in Gallery Titanikas, Maironio st. 3, Vilnius, Lithuania. Titanikas is an exhibition hall belonging to the Vilnius Academy of Arts, the largest and oldest art university in the Baltics. It focuses on modern art, design and graphics. Several of the selected works will also be exhibited in Leipzig, Germany; Vercelli, Italy; in Austria; Nacogdoches, Texas, USA, as well as in Australia. For further information see the triennial’s webpage: ERROR.
Ljósmyndir / photos: Anna Snædís Sigmarsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir and Svanborg Matthíasdóttir.
Síðasti sýningardagur – Last day of book art exhibition in Gerðuberg
Endurbókun lokar – missið ekki af sýningunni í Gerðubergi! Síðasti sýningardagur á morgun, sunnudag 11. janúar. Athugið að aðeins er opið um helgar á milli kl. 13 og 16.
Last exhibition day of Endurbókun in Gerðuberg Culture Center tomorrow January 11th. Note that the center is only open between 1 pm and 4 pm in weekends.




© Ljósmyndir / photos: Kristín Þóra Guðbjartsdóttir og Sigurður Stefán Jónsson.
Gleðilegt ár! – Happy New Year!
ARKIR óska vinum og velunnurum bóka gleðilegs árs og friðar. Við minnum á bókverkasýninguna ENDURBÓKUN í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, en henni lýkur n.k. sunnudag, 11. janúar. Myndir af verkum á sýningunni má sjá hér og hér.
ARKIR wish you all a very happy New Year and merry bookart making in 2015! We would like to remind you that the exhibition ‘ENDURBÓKUN’ (RE-BOOKED) at Gerðuberg Culture Center is soon coming to an end. We encourage you to visit the exhibition before it closes on Sunday, January 11th. The exhibition is open fram 8 am to 6 pm Mon-Fri and 1 pm to 4 pm Sat-Sun. See our older blog posts with photos of works from the exhibition here and here.
Endurbókun í Gerðubergi – ARKIR in Gerðuberg
Sýningin ENDURBÓKUN sendur nú yfir í menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Sýningin opnaði 1. nóvember s.l. og stendur til 11. janúar 2015. Verk á sýningunni eiga: Anna Snædís Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir, Svanborg Matthíasdóttir og Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, sem einnig er sýningarstjóri.
The book art exhibition ENDURBÓKUN / RE-BOOKED is now ongoing in Gerðuberg Culture Center. The exhibition will remain open until 11. January 2015. Participants are: Anna Snædís Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir, Svanborg Matthíasdóttir and Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, who also is the exhibition curator.
Tenglar á efni um sýninguna – More about the exhibition: Gerðuberg. ARKARvefurinn: Fyrri póstar – Previous posts on ENDURBÓKUN.
Click on images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.
photos © Áslaug Jónsdóttir
Opnun: Endurbókun – Opening at Gerðuberg
ARKIR opnuðu bókverkasýninguna ENDURBÓKUN í menningarmiðstöðinni Gerðubergi á Degi myndlistar 2014, 1. nóvember s.l. Við þökkum gestum okkar kærlega fyrir góðar viðtökur á opnuninni. Sérstakar þakkir fær starfsfólk í Gerðubergi – og auðvitað sýningarstjórinn okkar: Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, sem reyndar var fjarri góðu gamni á laugardag.
Sýningin stendur til 11. janúar 2015. Myndir af verkum á sýningunni má sjá hér.
RE-BOOKED! The exhibition opening in Gerðuberg Culture Center last Saturday went well. Our guests were merry and we were certainly happy about it all. Many thanks to all the staff at Gerðuberg and of course our exhibition curator Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, who sadly couldn’t join us at the opening. Below: photos from the opening. To see artwork from the exhbition click here.
The exhibition at Gerðuberg is open until 11. January 2015.
Click on images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.
photos © Áslaug Jónsdóttir
Endurbókun – Re-booked by ARKIR
ARKIR opna bókverkasýningu í menningarmiðstöðinni Gerðubergi, á morgun, laugardaginn 1. nóvember kl. 14. Öll verk á sýningunni eiga það sameiginlegt að vera unnin úr gömlum bókum. Flestar þeirra voru fengnar hjá Gerðubergssafni, en bókasöfn afskrifa árlega nokkurn fjölda bóka til frekari útlána. Þessar gömlu bækur, sem lokið hafa hlutverki sínu, hafa öðlast nýtt líf í einstæðum listaverkum.
Sjö ARKIR eiga verk á sýningunni: Anna Snædís Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir, Svanborg Matthíasdóttir og Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, sem einnig er sýningarstjóri. Lesa má um sýninguna á vef Gerðubergs hér. Verið velkomin á sýningaropnun!
– – –
We are almost there! ARKIR are opening a new book art exhibition at Gerðuberg Culture Center tomorrow, Saturday November 1st, at 2 pm. All the works are created by using old books, mostly discared books from Gerðuberg Library. The title of the exhibition is “Endurbókun” or: Re-book.
Seven ARKIR-members show their works: Anna Snædís Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Svanborg Matthíasdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir and Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, who also is the exhibition curator.
Join us tomorrow at the opening!
Links to Gerðuberg website: here and here.
Ljósmyndir / Photos: Gerðuberg Culture Center; Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Áslaug Jónsdóttir
Ný sýning í vændum – New exhibition in November
ARKIRNAR undirbúa nú verk fyrir næstu sýningu sem opnuð verður í Gerðubergi 1. nóvember og ber nafnið Endurbókun. Vorið 2013 höfðum við samband við bókasafnið í Gerðubergi og snemma sumars fengum frá þeim efnivið í sýninguna: bækur sem afskrifaðar hafa verið til frekari útlána. Við sögðum frá því í pósti hér. Meðfylgjandi myndir sýna brot og smáatriði úr verkum sem ARKIR eru að vinna að fyrir sýninguna. Smellið á myndirnar til að stækka!
– – –
ARKIR are working on a new exhibition that will open in Gerðuberg Culture Center in November. The earliest preparations started already in the spring 2013 when we received a stack of boxes and big bags full of discarded library books from the City Library in the center. We wrote about it in a blog post here. Since then we have had other projects and exhibitions to attend to but now we are focusing on “Endurbókun”or: Rebook. The photos show details and fragments from the works that are under process. Click on the images for larger view!
Land/brot – Book art exhibition
ARKIRNAR Ösp og Helga Pálína höfðu hraðar hendur þegar þær gengu frá sýningarskrá og veggspjaldi fyrir bókverkasýninguna land/brot í Þórbergssetri á Hala í Suðursveit. Sýningin stendur til 30. ágúst. Lesið fyrri póst um sýninguna “land/brot” hér.
Hönnun veggspjalda og sýningarskrár: Kristín Þóra Guðbjartsdóttir.
Ljósmyndir hér fyrir neðan: Helga Pálína.
• • •
Catalog and poster printed and sent to Hali! With skilled hands ARKIR members Helga Pálína and Ösp folded a stack of catalogs for ARKIR’s book art exhibition: “land/brot”, at Þórbergur Center and Country Hotel at Hali Suðursveit.
Read also previous post about the title and exhibition “land/brot” here.
Poster and catalog design by ARKIR member Kristín Þóra Guðbjartsdóttir.
Photos below: Helga Pálína.
ARKIR brjóta land – ARKIR working the land
Nýverið lögðu nokkrar ARKIR af stað út á land með bókverk í farteskinu. Ferðinni var heitið að Þórbergssetri á Hala í Suðursveit. Þar opnar í júní lítil sýning sem ber heitið land/brot.
Á sýningunni land/brot má sjá brot af verkum úr smiðju ARKANNA, en flest tengjast þau á einhvern hátt landi eða löndum í breiðum skilningi: landi sem jörð og náttúru, eða landi sem afmörkuðu svæði á jarðarkringlunni eins og það er skilgreint með landamærum og nafngiftum. Sýningin land/brot verður þáttur í stærra verkefni eða röð sýninga, en með sýningunni á Hala vilja ARKIR leggja land undir fót og hefja nýja ferð um margbrotnar lendur bókverkanna.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá undirbúningi og nokkur verkanna á sýningunni.
• • •
ARKIR are opening a small book art exhibition at Þórbergur Center and Country Hotel at Hali Suðursveit, in the South East of Iceland. The title of the exhibition is “land/brot” referring to the theme “land” in the broadest sense of the term as well as “brot” that has many meanings in Icelandic: “a fraction”, “a piece”, “a crease”, “a format”. “Landbrot” also means erosion from the sea, “the breaking of the land”. Little “land/brot” will be a part of a bigger exhibition or series of smaller exhibitions ARKIR are planning. There are both new works and older works at Hali, although just a fragment of ARKIR works, all referring to the theme LAND.
Below: Photos from preparations and exhibition work.
Ljósmyndir: / Photos by: Svanborg, Áslaug and Ösp.
HEIMA og heiman – HOME in Denmark
Farandsýningin HEIMA, hem : hjem : koti : heim : heima : angerlarsimafik, er til sýnis í Doverodde Købmandsgaard á Norður Jótlandi til 13. júní, en þá heldur hún áfram til Kaupmannahafnar og verður til sýnis í menningarmiðstöðinni Nordatlantens Brygge frá 21. júní til 25. ágúst. Já, í Köben, kóngsins Köbenhöfn
Hér er blogg-færsla um bókverkin með myndum hjá Doverodde Book Arts og hér eru enn fleiri myndir á Flickr-síðu þeirra.
• • •
The travelling exhibition: HOME, hem : hjem : koti : heim : heima : angerlarsimafik, can be viewed in Doverodde Købmandsgaard in Jutland until June 13th. It will then be exhibited in the cultural center Nordatlantens Brygge (The North Atlantic House) in Copenhagen, where the exhibition is hosted from June 21st until 25th of August.
Here is Doverodde Book Arts’ blog with an article about the exhibition (in Danish) and here are more photos on their Flickr-page.
HEIMA í Doverodde – HOME: Opening in Jutland
Það hefur verið rólegt hér á blogginu um hríð en það þýðir ekki að ARKIRNAR sitji auðum höndum. Fregnir af næstu sýningum birtast hér bráðlega!
Farandsýningin HEIMA, hem : hjem : koti : heim : heima : angerlarsimafik, heldur áfram ferð sinni um Norðurlönd, en síðastliðinn þriðjudag var sýningin opnuð í Doverodde Købmandsgaard á Norður Jótlandi. Þar opnuðu hvorki meira né minna en þrjár bókverkasýningar þann 6. maí 2014. Sýningin heldur síðan áfram til Kaupmannahafnar í júní og verður til sýnis í menningarmiðstöðinni Nordatlantens Brygge til 20. ágúst.
• • •
ARKIR are happy to announce that the travelling exhibition HOME, hem : hjem : koti : heim : heima : angerlarsimafik, has now opened in Doverodde Købmandsgaard in North Jutland. Exhibition dates: 6th of May – June 13th. Later in June it will travel to Copenhagen to be exhibited in the cultural center Nordatlantens Brygge (The North Atlantic House), where the exhibition is hosted until 20th of August.
Gengið frá HEIMA – Packing, home sweet home …
HEIMA. Sýningunni HEIMA í Norræna húsinu lauk sunnudaginn 23. febrúar. Á mánudagsmorgni mættu ARKIRNAR og pökkuðu niður sýningunni, hátt í hundrað bókverkum. Sýningin, sem heitir raunar fullu nafni: hem : hjem : koti : heim : heima : angerlarsimafik, fer nú til Danmerkur og verður sett upp í Limfjordscentret Doverodde Købmandsgaard á Norður Jótlandi. Þar opnar sýningin 6. maí og stendur til 13. júni. Þaðan liggur leiðin til Kaupmannahafnar og frá 21. júní til 20. ágúst verða verkin til sýnis í menningarmiðstöðinni Nordatlantens Brygge í Christianshavn.
• • •
HOME. Sunday February 23rd was the last day of the book art exhibition HOME, hem : hjem : koti : heim : heima : angerlarsimafik, in the Nordic house. And Monday morning ARKIR met up to pack and make the works ready for shipping to Denmark. Next stop is a cultural center in North Jutland: Limfjordscentret Doverodde Købmandsgaard. The travelling exhibition will open there at 6th of May, closing on June 13th. Only a week later, on June 21st, it will open in the cultural center Nordatlantens Brygge (The North Atlantic House) in Copenhagen, where the exhibition is hosted until 20th of August.
Síðasta sýningarhelgi – Last days at HOME
HEIMA – Síðasta sýningarhelgi! Leiðsögn á sunnudag kl. 14.
Það er komið að lokum sýningarinnar HEIMA, – hem : hjem : koti : heim : heima : angerlarsimafik í Norræna húsinu. Sýningu lýkur á sunnudag en hún er opin í dag og á morgun frá kl. 12-17. Leiðsögn verður um sýninguna á morgun, sunnudag, kl. 14. Verið velkomin! Aðgangur er ókeypis og bókaunnendum má benda á að bókasafn Norræna hússins er líka opið gestum.
– – –
HOME – book art exhibition closing soon!
Artist talk on Sunday 23. February, at 2 pm.
The exhibition HOME – hem : hjem : koti : heim : heima : angerlarsimafik in the Nordic house closes on Sunday. ARKIR members guide, give artist talks on Sunday at 2 pm. In Icelandic. Free admission.
Gestir á Safnanótt 2014 – Guests on Museum Night
Á Safnanótt, föstudagskvöldið 7. febrúar, stóðu ARKIR fyrir leiðsögn og bókagerðarsmiðju í tengslum við sýninguna HEIMA í Norræna húsinu. Fjölmargir gestir nýttu sér ókeypis aðgang og óvenjulegan opnunartíma safnanna allt til miðnættis.
– – –
Art lovers enjoyed Museum Night on Friday night, February 7th, at Reykjavík Winter Lights Festival 2014. ARKIR invited guests to a guided tour around the book art exhibition HOME in the Nordic house, as well as giving a free workshop in book making.
Það var svo óvænt ánægja að hitta einn af erlendu listamönnunum sem taka þátt í sýningunni HEIMA: Julia Pars frá Grænlandi. Hún var stödd á Íslandi til að taka þátt í öðru norrænu verkefni á Safnanótt, margmiðlunarinnsetningunni „Vetrarljós“ í anddyri Þjóðminjasafnsins á vegum TURA YA MOYA listasmiðjunnar. (Sjá tengla!)
– – –
And then we got an unexpected visitor! We were delighted to meet one of the artists from Greenland: Julia Pars, who participates in the book art exhibition HOME. She was visiting Iceland for another Nordic project: an installation in the foyer of the National museum at the Reykjavík Winter Lights Festival 2014. The multimedia installation „Winter Light“ is a project of the art group TURA YA MOYA, run by Danish artist Karen Thastum. (See links!)
Fleiri myndir frá Safnanótt 2014 í Norræna húsinu:
More photos from Museum Night 2014 in the Nordic house:
Við sýningarsalina í Norræna húsinu má áfram finna leiðbeiningar að einföldum bókarbrotum, pappír og aðstöðu til bókagerðar fyrir gesti sýningarinnar. Skoðið sýninguna HEIMA og prófið bókarbrotin!
– – –
Paper and the easy-to-follow instructions are still available for guests in the Nordic house if you care to try out some simple origami book folding. See the exhibition HOME and get inspired!







































